Dec
19th
2011
Mon
19th
2011
Í dag 19. desember á afmælisdegi pabba er tækifæri til að minnast á myndir um Jón H. Björnsson nýkomnar á YouTube nú þegar takmörkunum á tímalengd myndbanda hefur verið aflétt þar. Fyrir um ári birtust sömu myndir á The Internet Archive.
- Fræsöfnunarferð frá Íslandi til Alaska sumarið 1951 - „Alaska myndin“ - sem bræðurnir Árni og Jón H. Björnssynir fóru
- Jón H. Björnsson - æviágrip - tekið upp í apríl - desember 1981
- Fræsöfnunarferð til Eldlands í apríl 1991 - sem Guðmundur T. Gíslason, Jón H. Björnsson og Pétur N. Ólason fóru. Má kalla framhald af Alaskaferðinni, 40 árum síðar.
- Frumkvöðlar - Jón H. Björnsson - heimildarmynd eftir Svein M. Sveinsson - Plús film
- Jón H. Björnsson skoðar garða - 9. og 11. júní 2009 - síðasta mánuð ævinnar.
